Tenglar
Forsíða
Geysir
Stjórn og nefndir
Gaddstaðaflatir
Lög Geysis
Deildir
Úrslit
Leiðbeiningar v. skráninga
Myndir



 

14. apríl 2010
Áhugavert mót!
 

 Opna Líflandsmótið verður 18.apríl
Árlegt Líflandsmót Æskulýðsdeildar Fáks verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal
sunnudaginn 18.apríl. Fimm dómarar dæma, veglegt þátttakendahappdrætti þar sem í
verðlaun er hnakkur frá Líflandi, veitingasala í Reiðhöllinni og mikið fjör á
áhorfendapöllunum.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

  a.. Pollaflokkur - tölt og tvígangur (teymingahópur / þeir sem ríða sjálfir. Ekki
raðað í sæti)
  b.. Barnaflokkur - tölt og fjórgangur
  c.. Unglingaflokkur - tölt, fjórgangur og fimmgangur
  d.. Ungmennaflokkur - tölt, fjórgangur og fimmgangur
Skráningargjaldið er kr. 2000 (pollaflokkur þarf ekki að greiða) og verður tekið á
móti skráningum í Reiðhöllinni í Víðidal þriðjudaginn 13.apríl milli kl. 18:00 og
20:00. Einnig verður tekið við skráningum í síma 567 0100, 567 2166, 897 4467, 820
1111 og 695 9101 á sama tíma, gegn greiðslu með kreditkorti. Eftir auglýstan tíma
verður ekki tekið á móti skráningum.

Aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.




Tilbaka
10. september 2010


     

s m þ m f f l
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

 


 Skráning á mót
Skráningarkerfið er lokað núna




   
   

© Hestamannafélagið Geysir - Hólavangi 20 - 850 Hellu - hmfgeysir@hmfgeysir.is

Byggir á vefumsjónarkerfi