Tenglar
Forsíða
Geysir
Stjórn og nefndir
Gaddstaðaflatir
Lög Geysis
Deildir
Úrslit
Leiðbeiningar v. skráninga
Myndir



 

Leiðbeiningar vegna skráninga á mót  

Skráning á mót fer þannig fram að valið er mót til hægri á síðu Geysis. 

Þá birtist innskráningargluggi þar sem slá þarf inn notendanafn og lykilorð.  Ef þú ert ekki með notendanafn og lykilorð þá verður þú að skrá þig inn.

Í innskráningarformið skráir þú helstu upplýsingar um þig og svo þegar þú er búin(n) að því ýtir þú á "áfram" og þá þarft þú að bíða eftir að fá notendanafn og lykilorð í tölvupósti á það netfang sem þú gafst upp í skráningarforminu.

Þegar það er komið er hægt að skrá sig inn. Þegar inn í aðalvalmynd er komið er listi yfir mót framundan og þar er hægt að velja "Skráning á mót". 

Þá birtist skráningarform fyrir skráningu á mót. Þar þarf að velja flokk og keppnisgrein.  
Athugið að ekki er hægt að velja fleiri en eina grein í einu.  Hægt er að fara tilbaka og skrá aftur.

Þegar búið er að skrá birtist listi með öllum greinum sem búið er að skrá í.  Hægt er að breyta og eyða út skráningum í þessum lista.

Þessi listi birtist líka úr aðalvalmynd undir "Skoða skráningu" 

 Í aðalvalmynd er einnig hægt að breyta lykilorði og svo þegar öllu er lokið er valið "Útskráning"

Síðast en ekki síst verður að ganga frá skráningargjöldum að þessu öllu loknu.

8. september 2010


     

s m þ m f f l
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

 


 Skráning á mót
Skráningarkerfið er lokað núna




   
   

© Hestamannafélagið Geysir - Hólavangi 20 - 850 Hellu - hmfgeysir@hmfgeysir.is

Byggir á vefumsjónarkerfi