Opið er fyrir skráningar til kl. 23:59 sunnudagskvöldið 4. júní.
Framundan er opið Gæðingamót Geysis sem jafnframt er úrtaka fyrir Fjórðungsmót. Mótið fer fram 9.-11. júní, endanlegar dagsetningar ráðast af skráningarfjölda. Vakin er athygli á því að þeir sem hyggjast taka þátt í Gæðingakeppni f.h. félagsins á Fjórðungsmóti þurfa að fara í gegnum úrtöku hjá félaginu. Efstu 18 í hverjum flokki sem keppa fyrir Geysi öðlast þátttökurétt.
Langtíma veðurspáin fyrir helgina er mögnuð og hefur verið ákveðið að bjóða uppá 250m, 150m og 100m skeið. Veðurspáin segir 15°C og 2m/s, við vitum að brautin á Rangárbökkum er ein sú hraðasta á landinu og því nokkuð borðleggjandi að það munu nást góðir tímar!
Fyrirspurnir vegna mótsins sendist á hmfgeysir@hmfgeysir.is
Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
- Nái skráningar ekki 20 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
- Nái skráningar ekki viðunandi fjölda fellur flokkur niður eða verður sameinaður öðrum eftir atvikum.
- Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
- 500 kr í Fullorðins og ungmennaflokka.
- 000 kr í Unglinga- og barnaflokk sem og skeiðgreinar.
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka:
- A flokkur (gæðingaflokkur 1 og 2)
- B flokkur (gæðingaflokkur 1 og 2)
- A flokkur Ungmenna
- B flokkur Ungmenna
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- Gæðingatölt Fullorðins-, ungmenna-, unglinga- og barnaflokkur)
- 250m skeið
- 150m skeið
- 100m skeið
Opið er fyrir skráningar til kl. 23:59 sunnudagskvöldið 4. júní.
Við hvetjum knapa til þess að skrá tímanlega,
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Rangárbökkum!
Mótsnefnd Gæðingamóts Geysis 2023