Aðalfundur Geysis fór fram miðvikudaginn 6. mars. Í kjöri til stjórnar voru laus þrjú sæti aðalmanna og tvö sæti varamanna. Allir stjórnar og vara-stjórnarmenn gáfu kost á sér áfram en þær breytingar urðu að Lárus Jóhann Guðmundsson sem átti sæti í stjórn var kosinn í stjórn til eins árs í stað tveggja ára til þess að “leiðrétta” samkvæmt lögum félagsins. Sóley Margeirsdóttir var kosin í aðalstjórn en var áður vara maður. Marta Gunnarsdóttir var endurkjörin í stjórn. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson formaður og Guðmundur Björgvinsson meðstjórnandi voru kjörnir til tveggja ára á aðalfundi 2023. Í varastjórn eru Dórothea Oddsdóttir og Jónína Lilja Pálmadóttir.
Á fundinum voru lög félagsins uppfærð og má nálgast þau hér.
Stjórn félagsins hefur haldið fyrsta fund og skipti þar með sér verkum samkvæmt lögum.
Stjórn og hlutverk:
Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, Formaður.
Sóley Margeirsdóttir, Vara-Formaður.
Lárus Jóhann Guðmundsson, Gjaldkeri.
Marta Gunnarsdóttir, Ritari.
Guðmundur Friðrik Björgvinsson, Meðstjórnandi.
—
Jónína Lilja Pálmadóttir, Varastjórn.
Dórothea Oddsdóttir, Varastjórn.
Aðalfundargerð má nálgast hér fyrir neðan.
Aðalfundur Hestamannafélagsins Geysis
Haldinn 6. mars 2024 klukkan 19:00 í Rangárhöllinni
Mættir 26 félagsmenn
Dagskrá:
- Kosnir fastir starfsmenn fundarins.
Guðný H. Indriðadóttir ritari og Jón G. Valgeirsson fundarstjóri.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
Eiríkur Vilhelm Sigurðsson flutti skýrslu stjórnar. Öflugt námskeiðahald fyrir yngri iðkendur og mikið líf í mótahaldi á árinu.
- Nefndir gefa skýrslur
- Fræðslunefnd – Sara Pesenacker flutti skýrslu nefndar.
- Mótanefnd – Sóley Margeirsdóttir flutti skýrslu nefndar. Mótanefnd sér um stærri mót sem haldin eru. Framundan er meðal annars úrtaka fyrir landsmót.
- Skemmtinefnd – Erlendur Árnason sagði frá nýstofnaðri nefnd. T.d. fyrirhuguð folandasýning og skemmtikvöld
- Reiðveganefnd – Kristín Bjarnadóttir flutti skýrslu nefndar. Alls eru 75 milljónir í reiðvegafé á landsvísu en um 11 milljónir komu inn á suðursvæði 2 sem er svæðið sem Geysir tilheyrir, ásamt Hestamannafélögunum Sindra og Kóp. Fyrirliggjandi er að reiðvegafé verði aukið 2024.
- Vetrarmótanefnd – Eiríkur Vilhelm flutti skýrslu nefndar í fjarveru nefndarmanna
- Æskulýðsnefnd – Heiðdís Arna Ingvarsdóttir flutti skýrslu nefndar. Framundan er föndurkvöld og einnig er búið að fá Guðmund Árnason í Baldvin og Þorvaldi til að koma og kenna umhyrðu reiðtygja. Æska Suðurlands í samstarfi við önnur félög á Suðurlandi o.fl. framundan.
- Rangárbakkar og Rangárhöllin – Gústav M. Ásbjörnsson sagði frá starfi félaganna í stórum dráttum. Svæðið nánast í stöðugri notkun frá vori og fram á haust og yfirgnæfandi meirihluti kynbótahrossa sýnd á svæðinu. Bókaðar eru 7 vikur í kynbótasýningar sumarið 2024. Verið að vinna í makaskiptum á landi við Rangárþing ytra þannig að Rangárbakkar eigi allar lóðir undir stóðhestahúsi, Rangárhöllinni og lóð sunnan við stóðhestahús. Rangárbakkar sóttu, ásamt öllum hestamannafélögum á suðurlandi, um að halda landsmót 2028 og fengu það. Rangárhöllin er í mikilli notkun og aðstaða hefur verið bætt. Um 22 ha af landi sem Rangárbakkar hafa á sínu forræði og huga þarf vel að því hvernig á að nota þá.
- Skeiðvangur – Úlfar Albertsson sagði frá því helsta í starfinu þar. Alma Gulla Matthíasdóttir kennir þar knapamerkin, haldin er firmakeppni á sumardaginn fyrsta o.fl. Til eru einhverjir fjármunir til að klára framkvæmdir sem þar hafa verið í gangi.
- Reikningar ársins 2023.
Lárus Guðmundsson fór yfir ársreikninginn. Staða í lok árs 2023 12 milljónir í plús og félagið er skuldlaust. Reikningar samþykktir
- Ákvörðun árgjalds til eins árs.
Tillaga stjórnar að árgjaldi 2024 er 10.500 kr, sem er hækkun um 1.000 kr úr 9.500 kr. Tillagan er samþykkt.
- Lagabreytingar en til umræðu verða 2.,5.,6.,7.,8., 10., 11., 12., 15. og 16. grein.
2. gr.
Félagsmenn geta allir orðið sem þess óska. Nýr félagi öðlast félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur samþykkt aðild hans og hann hefur greitt félagsgjald. Um keppnisrétt fyrir hönd Geysis og á mótum félagsins gilda reglur LH. Þar stendur að keppnisrétt öðlast félagar eftir 30 daga í félaginu.
Tillaga að 2. grein.
Félagsmenn geta allir orðið sem þess óska. Nýr félagi öðlast félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur samþykkt aðild hans og hann hefur greitt félagsgjald. Um keppnisrétt fyrir hönd Geysis og á mótum félagsins gilda reglur LH.
Tillaga samþykkt.
5. grein í dag
Skipta skal félaginu í starfsdeildir, fleiri eða færri eftir atkvikum á hverjum tíma, sem ákveðst á aðalfundi.
Tillaga að 5. grein.
Heimilt er að skipta félaginu í starfsdeildir, fleiri eða færri eftir atvikum á hverjum tíma.
Tillaga samþykkt
6. grein í dag
Hver deild kýs sér deildarstjóra til eins árs í senn á aðalfundi viðkomandi deildar. Einnig skal hverri deild heimilt að kjósa sér stjórn með deildarstjóra og skal hann þá verða formaður hennar jafnframt. Skal kjörið tilkynnt félagsstjórn fyrir aðalfund. Deildarstjóri/Deildarstjórn skal hafa umsjón og forystu um allt æfinga- og félagsstarf í viðkomandi deild, undirbúning og þátttöku deildarinnar í mótum félagsins. Deildarstjóri er sjálfkjörinn í fulltrúaráð og mótsstjórn.
Tillaga að 6. grein.
Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.
Tillaga samþykkt.
7. grein í dag
Mótsstjórn félagsmóts skal þannig skipuð:
Deildarstjórar allir sitja í mótsstjórn en félagsstjórn skipar formann, Mótsstjórn ræður framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn móts.
Tillaga að 7. Grein
Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.
Tillaga samþykkt.
8. grein í dag
Um verðlaunarétt og annað varðandi kappreiðar fer að öllu eftir reglum LH. Verðlaunaupphæð ákvarðar félagsstjórn fyrir hvert mót. Um verðlaun fyrir aðrar keppnisgreinar eða sýningar fer eftir sérreglum er þar um gilda á hverjum tíma.
Tillaga er um að greinin verði alveg tekin út.
Tillaga samþykkt.
10. grein í dag
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Kosnir fastir starfsmenn fundarins.
Skýrsla stjórnar um starfssemi félagsins á liðnu ári.
Nefndir gefa skýrslur
Reikningar næstliðins árs, sem gjaldkera ber að leggja fram endurskoðaða.
Ákvörðun árgjalds til eins árs.
Lagabreytingar, ef fram koma.
Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum.
Kosningar skv. 12. gr.
Tillaga að 10. Grein (verður 7. grein)
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarritara og fundarstjóra
2. Skýrsla stjórnar
3. Skýrslur nefnda
4. Endurskoðaður ársreikningur
5. Ákvörðun árgjalds til eins árs.
6. Lagabreytingar
7. Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum.
8. Kosningar skv. 9. gr.
Tillaga samþykkt.
11. grein
Í kosningum ræður einfaldur meirihluti nema um lagabreytingu sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða kjörgengra og mættra félagsmanna. Hver félagi hefur aðeins eitt atkvæði. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum skulu tilkynnt stjórn félagsins minnst einni viku fyrir fund. Fundur getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra leyft að taka fyrir mál, önnur en lagabreytingar, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.
Tillaga að 11. grein (verður 8 grein)
Í kosningum ræður einfaldur meirihluti viðstaddra félagsmanna nema um lagabreytingu sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða. Hver félagi hefur aðeins eitt atkvæði. Málefni sem félagar óska að tekin verði fyrir á fundinum skulu tilkynnt stjórn félagsins minnst einni viku fyrir fund. Fundur getur með 2/3 hluta atkvæða viðstaddra félagsmama leyft að taka fyrir mál, önnur en lagabreytingar, sem komið er fram, eftir að dagskrá fundarins var auglýst.
Tillaga samþykkt.
12. grein
Félagsstjórn skal skipuð fimm mönnum, formanni, varaformanni og þremur meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir skriflega til tveggja ára í senn þannig: formaður og tveir meðstjórnendur eru kosnir annað árið og varaformaður og einn meðstjórnandi hitt árið. (Ef í stöðu formanns er kjörinn sitjandi varaformaður skal kosinn nýr varaformaður til eins árs). Kjósa skal tvo menn í varastjórn til eins árs í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum nema formaður og varaformaður sem kosnir eru á aðalfundi. Kjósa skal tvo skoðunarmenn reikninga til tveggja ára í seinn og ganga þeir út sitt árið hvor. Kosning fulltrúa á landsþing LH skal fara fram annað hvert ár eða það ár sem þingið fer fram og skal kjörið vera skv. lögum LH. Þrír stjórnarmenn; formaður, ritari og gjaldkeri skulu vera sjálfkjörnir til setu á landsþingi. Geti einhver nefndra manna ekki mætt á landsþingið skal annar stjórnarmaður mæta í hans stað. Félagsmenn hafa allir sama rétt, með þeirri undantekningu að kjörgengi og kosningarétt til íþróttaþinga (s.s HSK þings) og landsþings hafa þeir félagsmenn, sem náð hafa 16 ára aldri. Skylt er hverjum kjörgengum félaga að taka skipun eða kosningu til trúnaðarstarfa fyrir félagið eitt kjörtímabil, en ekki er hann skyldur að taka endurkjöri.
Tillaga að 12. Grein (verður 9. Grein)
Stjórn skal skipuð fimm mönnum, formanni og fjórum meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir skriflega til tveggja ára í senn þannig: formaður og tveir meðstjórnendur eru kosnir annað árið og tveir meðstjórnendur hitt árið. Kjósa skal tvo menn í varastjórn til eins árs í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund félagsins. Nema formaður sem kosinn er á aðalfundi. Kjósa skal tvo skoðunarmenn reikninga til tveggja ára í senn og ganga þeir út sitt árið hvor. Stjórn velur fulltrúa á landsþing LH og HSK þing. Stjórn er sjálfkjöin til setu á landsþingi. Félagsmenn hafa allir sama rétt, með þeirri undantekningu að kjörgengi og kosningarétt til íþróttaþinga (s.s HSK þings) og landsþings hafa þeir félagsmenn, sem náð hafa 16 ára aldri. Skylt er hverjum kjörgengum félaga að taka skipun eða kosningu til trúnaðarstarfa fyrir félagið eitt kjörtímabil, en ekki er hann skyldur að taka endurkjöri.
Tillaga samþykkt.
15. grein
Félagsstjórn og deildarstjórar mynda fulltrúaráð sem kalla skal saman til allra meiriháttar ákvaðarðana er formaður telur við þurfa og ekki er boðað til félagsfundar. Almennir félagsfundir skulu ekki vera færri en tveir á ári svo og er félagsstjórn skylt að boða til félagsfundar ef 15 menn eða fleiri óska þess. Komi fram tillögur á félagsfundi, sem að mati stjórnar hafi veruleg áhrif á starfssemi félagsins, er stjórninni heimilt að boða til framhaldsfundar vegna málsins eigi síðar en 20 dögum síðar. Fundir skulu ætíð boðaðir á tryggan hátt með góðum fyrirvara og skal ætíð geta fundarefnis í fundarboði.
Tillaga að 15. Grein (verður 12. grein)
Almennir félagsfundir skulu ekki vera færri en tveir á ári og er stjórn skylt að boða til félagsfundar ef 15 félagsmenn eða fleiri óska þess. Komi fram tillögur á félagsfundi, sem að mati stjórnar hafi veruleg áhrif á starfsemi félagsins, er stjórninni heimilt að boða til framhaldsfundar vegna málsins eigi síðar en 20 dögum síðar. Fundir skulu ætíð boðaðir á tryggan hátt með góðum fyrirvara og skal ætíð geta fundarefnis í fundarboði.
Tillaga samþykkt.
16. grein
Annan félagsfundinn skal halda fyrir lok nóvember ár hvert og skal skipa í starfsnefndir félagsins. Starfsnefndirnar eru æskulýðsnefnd, fræðslunefnd, vetrarmótanefnd, íþróttamótanefnd, gæðingamótanefnd, reiðveganefnd. Einnig aðrar tímabundar starfsnefndir. Greinargerðir hverrar nefndar er að finna á heimasíðu félgsins.
Tillaga að 16. grein (verður 13. grein)
Annan félagsfundinn skal halda fyrir lok nóvember ár hvert og skal skipa í starfsnefndir félagsins. Starfsnefndirnar eru æskulýðsnefnd, fræðslunefnd, vetrarmótanefnd, mótanefnd og reiðveganefnd. Einnig aðrar tímabundar starfsnefndir. Greinargerðir hverrar nefndar er að finna á heimasíðu félagsins.
Tillaga samþykkt.
Stjórn er falið að uppfæra og setja lögin upp í samræmi við lagabreytingar og setja í rétta talnaröð.
Tillaga samþykkt.
- Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum
- Umræðuefni frá stjórn:
- Reiðvegamál við Hvammsvirkjun – Verið í viðræðum um reiðleiðir við Hvammsvirkjun.
- Landsmót 2024 – Geysir á 7 fulltrúa í hverjum flokki á landsmóti. Spurt hvort hægt væri að halda æfingamót áður en kæmi að úrtöku fyrir mótið og það er til skoðunar. Byrjað er að kanna mál varðandi fatnað merktan félaginu fyrir mótið.
- Kosningar skv. 12. gr
- Kjósa á um 3 aðalmenn í stjórn sem og 2 varamenn. Aðalmenn eru kosnir til tveggja ára en varamenn til eins árs.
Tillaga að 1 aðalmaður verði kosinn til eins árs og 2 aðalmenn til tveggja ára og 2 varamenn verði kosnir til 1 árs.
Lárus Jóhann Guðmundsson kjörinn sem aðalmaður til eins árs.
Sóley Margeirsdóttir og Marta Gunnarsdóttir kjörnar sem aðalmenn til tveggja ára.
Varamenn kjörnir til eins árs: Jónína Lilja Pálmadóttir og Dórothea Oddsdóttir.
Endurskoðandi til tveggja ára Einar Grétar Magnússon.
Einar Grétar Magnússon kvaddi sér hljóðs og sagði frá skönnun, sem verið er að vinna að, á myndasafni sem er í eigu Hestamannafélagsins Geysis.
Fundi slitið 20:52