Fundargerð stjórnar
7.1.2019
Staður: Kanslarinn kl.,19.00
Mæting: Ólafur Þórisson, Davíð Jónsson, Magnús Lárusson, Sigvaldi Lárus Guðmundsson, Brynja J. Jónasdóttir, Alma G. Matthíasdóttir og Hjörvar Ágústsson mættu.
Efni fundar og umræður
Dagsskrá (efni – afgreiðsla)
- Aðalfundur Geysis – aðalfundurinn verður 26.febrúar kl.20.00 í Rangárhöllinni, til kjörs eru formaður, tveir meðstjórnendur og varamenn, Óli finnur starfsmenn fundarins, Óli velur nokkrar lagagreinar félagsins til að uppfæra og samþykkja á aðalfundinum, bera upp siðareglurnar til samþykktar, kynna heimsíðuna.
- Fundargerðir stjórnar á tölvutæku formi – prenta út eitt eintak og setja í möppu sem geymist í Héraðsskjalasafninu að Skógum, eitt eintak á USP lykil (ritari geymir USP) og sett einnig á heimasíðu.
- Suðurlandsdeildin 2019 – starfsmenn þarf í ritun, tölvu og sölu á aðgöngumiðum.
- Heimasíðan – hafa sér flipa fyrir hverja nefnd og fundargerðir fyrir hvert ár.
- Önnur mál – Magnús prentar út lögin fyrir breytingar.
Fleira ekki gert og fundi slitið 20.00
Magnús Lárusson
Fundargerð stjórnar
11.2.2019
Staður: Kanslarinn kl.,20.00
Mæting: Ólafur Þórisson, Davíð Jónsson, Magnús Lárusson, Alma G. Matthíasdóttir Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Hjörvar Ágústsson mættu. Brynja J. Jónasdóttir mætti ekki.
Efni fundar og umræður
Dagsskrá (efni – afgreiðsla)
- Aðalfundur Geysis – mánudaginn febrúar, kl 20.00 níðri í Rangárhöllinni
– lög og reglur – Magnúsi falið að setja saman texta um gildi félagsins
– 350 kr á borgandi félagsmann fyrir worldfengvideo og Geysir borgar
– árgjaldið 8000 kr – hafa sama árgjald
– starfsmenn – búið að finna menn í öll störf
– annað efni á fundinn – segja frá hugmyndinni um yfirtöku gamla félagsheimilisins
– skýrslur starfsnefnda
– fá Þröst til að segja frá framvindu skrifa á sögu Geysis
- HSK þing – finna 3 fulltrúa á þingið sem haldið verður á fimmtudagi frá 5 til 10 í mars á Laugardegi
- Skuldalisti félagsmanna – of magir skulda enn fyrir árið 2018
- Önnur mál – heiðursfáni fyrir Geysi kostar tæp 200.000 kr með vsk. og stjórnin ákveður að kaupa hann – Magnús prentaði út lög félagsins frá 2007 og fundargerðir stjórnar 2016 – 2018 og setti fundargerðirnar á Usp lykil. Hann setti fundargerðir stjórnar á sér flipa fyrir hvert ár á heimasíðu Geysis
Fleira ekki gert og fundi slitið 21.30
Magnús Lárusson
Fundargerð stjórnar
18.3.2019
Staður: Kanslarinn kl.,20.00
Mæting: Ólafur Þórisson, Davíð Jónsson, Magnús Lárusson, Alma G. Matthíasdóttir og Sigvaldi Lárus Guðmundsson mættu. Hjörvar Ágústsson og Brynja J. Jónasdóttir mættu ekki.
Efni fundar og umræður
Dagsskrá (efni – afgreiðsla)
- Skipun stjórnar Geysis – óbreytt skipun stjórnar.
- Afmæli Geysis – uppskeruhátíð Geysis verður afmælihátið Geysis. Heiðursfélögum Geysis, formanni LH, fyrrverandi formönnum Geysis, formönnum hestamannafélaganna (8) á Suðurlandi, sveitarstjórunum (3) verður boðið á afmælishátíðina. Afmælisnefnd verður skipuð og mun sjá um undirbúning og framkvæmd afmælishluta uppskeruhátíðina. Bókin um sögu Geysis verður sett í forsölu í sumar.
- Félagshús – Geysi vantar geymslupláss og fundaraðstöð. Á aðalfundinum komu fram hugmyndir sem verður unnið með.
- Fjórðungsmót – Geysi er boðið að vera með á fjórðungsmóti 2019 á Austurlandi. Mótið verður haldið að Fornustekkjum í Hornafirði 11.-14. júlí. Gæðingamót Geysis verður úrtökumót fyrir fjórðungsmótið og þeir fara sem vilja fara.
- Fundur vegna LM 20202 – Formaður Geysis var boðaður á fund þriðjudaginn 26.mars með framkvæmdanefnd LM 2020 til að ræða undirbúning og aðkomu hestamannafélaganna á LM 2020.
- Önnur mál – auglýsa á haustinn eftir reiðkennurum í verkefni á vegum Geysis fyrir árið.
Fleira ekki gert og fundi slitið 21.20
Magnús Lárusson
Fundargerð stjórnar
1.4.2019
Staður: Kanslarinn kl.,20.00
Mæting: Ólafur Þórisson, Davíð Jónsson, Magnús Lárusson, Alma G. Matthíasdóttir mættu. Sigvaldi Lárus Guðmundsson, Hjörvar Ágústsson og Brynja J. Jónasdóttir mættu ekki.
Efni fundar og umræður
Dagsskrá (efni – afgreiðsla)
- LM 2020 –nokkrir stjórnarmenn fóru á fund mars með undirbúningsnefnd LM2020. Formaður greindi frá störfum undirbúningsnefndar og virðast þau vera á góðu róli.
- Stórsýning sunnlenskra hestamanna í Rangárvallahöllinni – sýningin verður á Skírdag. Hafa kynningu á bókinni um sögu Geysis og bjóða bókina í forsölu.
- Suðurlandsdeildin 2019 – keppnin gékk vel sem og lokahófið. Magnús setur inn á heimasíðuna hverjir úr stjórn Geysis eru í starfsnefndinni um Suðurlandsdeildina. Athuga með að byrja deildina næst hálfum mánuði seinna en var gert 2019.
- Æska Suðurlands – Keppni barna, unglinga og ungmenna á Suðurlandi. Keppnin gékk vel í heild sinni og líklegt að muni festa sig í sessi.
- Önnur mál.
Fleira ekki gert og fundi slitið 21.20
Magnús Lárusson
Fundargerð stjórnar
6.5.2019
Staður: Kanslarinn kl.,20.00
Mæting: Ólafur Þórisson, Davíð Jónsson, Magnús Lárusson og Alma G. Matthíasdóttir mættu. Sigvaldi Lárus Guðmundsson, Hjörvar Ágústsson og Brynja J. Jónasdóttir mættu ekki.
Efni fundar og umræður
Dagsskrá (efni – afgreiðsla)
- Saga Geysis, útlit og forsala – forsala bókarinnar verður út maí. Nefndin tekur ákvarðanir um útlit og innihald.
- Æskulýðssýning Geysis 1.maí. – sýningin tókst í alla staði með eindæmum vel. Stefnt er að hafa sýninguna með svipuðu sniði að ári.
- LM 2020 – vinnudagar niðri á Gaddstavelli verða í vikunni og um næstu helgi. Geysir vill taka þátt í að laga vellina og umhverfi.
- Gæðingamót Geysis 2019 – ákveðið var að seinka mótinu um eina viku og halda það 15/16 júní.
- Sýnikennsla Peter DeCosemo um dressage þjálfunarkerfi – rúmlega sextíu manns mættu á stórgóða sýnikennslu sem haldin var í Sumarliðabæ 13.apríl .
- Önnur mál – stjórn Geysis borgar prentun á plakati, sýningarskrá og leigu á Höllinni.
Fleira ekki gert og fundi slitið 21.00
Magnús Lárusson
Fundargerð stjórnar
3.6.2019
Staður: Kanslarinn kl.,20.00
Mæting: Ólafur Þórisson, Davíð Jónsson, Magnús Lárusson, Alma G. Matthíasdóttir og Sigvaldi Lárus Guðmundsson mættu. Hjörvar Ágústsson og Brynja J. Jónasdóttir mættu ekki.
Efni fundar og umræður
Dagsskrá (efni – afgreiðsla)
- Gæðingamót Geysis – Mótið fært til og haldið 15/16 júní. Boðið verður upp á alla flokka gæðingakeppninnar og pollaflokkinn. Skeiðleikar Skeiðfélagsins verða haldnir sömu helgi og Skeiðfélagið sér um alla framkvæmd skeiðleikanna. Skráningargjaldið er 5000 kr fyrir fullorðna og ungmenni. Forkeppnin verður á laugardeginum og úrslitin á sunnudeginum.
- Auglýsingar um bók Geysis – Formaðurinn sér um að koma auglýsingu um útgáfu og verð á bókinni um sögu Geysis.
Fleira ekki gert og fundi slitið 20.40
Magnús Lárusson