Suðurlandsdeildin
Suðurlandsdeildin
Ný deild í hestaíþróttum hóf göngu sína 31. janúar 2017, Suðurlandsdeildin Rangárhöllinni – Hellu.
UM SUÐURLANDSDEILDINA
Deildin er liðakeppni þar sem keppa allt að14 lið. Hvert lið á að skipa 2-3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum, tveir atvinnumenn og tveir áhugamenn keppa í hvert sinn. Liðin safna stigum og stendur það lið uppi sem sigurvegari sem flest stig hlýtur eftir mótin fjögur. Liðum er valfrjálst að skrá 2 eða 3 atvinnumenn (lið getur verið skipað 5 eða 6 knöpum) en sú skráning þarf að hafa farið fram fyrir auglýstan frest um liðsskipan hvers liðs fyrir hvert tímabil. Eftir að liðsskipan liðsins hefur verið send stjórn Suðurlandsdeildar verða engar breytingar á liðum leyfðar.
Atvinnumenn / Áhugamenn
Atvinnumaður: Allir ásamt ungmennum.
Áhugamaður: Er að lágmarki 18 ára á árinu og má ekki hafa keppt í meistaraflokk síðustu 2 ár.